Almenn starfslýsing félagsliða:
Starf félagsliða felst í að efla sjálfstæða og félagslega virkni, á heilbrigðis- félags- og menntunarsviði. Veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklingsins eru hafðar að leiðarljósi. Skjólstæðingar félagsliða eru oftast einstaklingar eða hópar sem vegna röskunar á þroska, veikinda, öldrunar eða áfalla þurfa á stuðning og þjónust að halda.Félagsliði aðstoðar við persónulegt hreinlæti, næringu, hreyfingu og aðrar daglegar athafnir í samræmi við þjónustuáætlun, auk þess að hafa eftirlit með fyrrgreindum þáttum. Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmann. Félagsliði leiðbeinir samstarfsfólki og nemendum, tekur þátt í aðlögun nýrra starfsmann og stuðlar að jákvæðum starfsanda.


