Efnisyfirlit
Fréttasafn
Netkosning
Því miður, enginn kosning í gangi núna.

Um félagið

Félag íslenskra félagsliða er fagfélag sem stofnað var 10. apríl 2003.

Tilgangur félagsins er:

  • Að vinna að hagsmunamálum félagsmanna, vernda réttindi þeirra og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum.
  • Að efla samheldni og samvinnu, stuðla að símenntun, fræðslu og bættri þekkingu félagsmanna.
  • Að hafa samvinnu við hliðstæð erlend félög.

Starf félagsliða felst í að efla félagslega virkni, á heilbrigðis,- félags- og menntunarsviði. Veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklingsins eru hafðar að leiðarljósi. Skjólstæðingar félagsliða eru oftast einstaklingar eða hópar sem vegna röskunar á þroska, veikinda, öldrunar eða áfalla þurfa á stuðning og þjónustu að halda.

Nöfn stjórnarmanna, kosin á aðalfundi 27. maí 2010:

  • Formaður: Jóhannes A. Levy
  • Varaformaður: Rakel Ólöf Bergsdóttir
  • Ritari: Björg Elín Finnsdóttir
  • Gjaldkeri:  Karitas Hrönn Hauksdóttir
  • Meðstjórnandi: Stefán E. Hafsteinsson
  • Meðstjórnandi: Árdís Jónsdóttir
  • Meðstjórnandi: Jenný Hjördís Sigurðardóttir
  • Varamaður: Kristín Ingólfsdóttir
  • Varamaður: Rebekka Alvarsdóttir

Trúnaðarmaður Félags íslenskra félagsliða er Þórdís R. Malmquist og varatrúnaðarmaður er Kristín Sigbjörnsdóttir.

Nánari upplýsingar um stjórnina er að finna undir Starfsmenn

Saga Félags íslenskra félagsliða – FÍF

Í júní 2002 hófu Bryndís Jónsdóttir og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir undirbúning að stofnun félags fyrir félagsliða. Hinn 4. nóvember 2002 var haldinn undirbúningsfundur vegna fyrirhugaðrar stofnunar fagfélags félagsliða. Kosin var undirbúningsnefnd og í henni sátu: Brandur Gíslason, Bryndís Jónsdóttir, Ingileif Ögmundsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Rakel Þorsteinsdóttir.

Boðað var til stofnfundar félagsins 10. apríl 2003. Á fundinum voru samþykkt lög og siðareglur fyrir félagið. Kosin var fimm manna stjórn, tveir varamenn og tveir endurskoðendur. Í fyrstu stjórn félagsins voru þessi kjörin:

  • Formaður Rakel Þorsteinsdóttir
  • Varaformaður Anna Ingvadóttir
  • Gjaldkeri Bryndís Jónsdóttir
  • Ritari Þórdís Ólöf Eiríksdóttir
  • Meðstjórnandi Margrét Halldóra Halldórsdóttir
  • Varamaður Brandur Gíslason
  • Varamaður Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
  • Endurskoðandi Erla Hrönn Júlíusdóttir
  • Endurskoðandi Ingileif Ögmundsdóttir