Efnisyfirlit
Fréttasafn
Netkosning
Því miður, enginn kosning í gangi núna.

Félagsliðanám

Skólar og félagsliðanám

Félagsliðanámi er hægt að ljúka á tvo vegu. Annars vegar er 81 eininga nám sem hægt er að hefja strax að loknu grunnskólaprófi. Borgarholtsskóli er sem stendur eini framhaldskólinn sem hefur þann möguleika. Hins vegar er námsfyrirkomulag, nefnt brú, þar sem starfsreynsla er metin hluti af námi og vinnustaðanámi. Skilyrði fyrir inngöngu í brú er að viðkomandi sé 22 ára eða eldri og hafi að lágmarki þriggja ára starfsreynslu og hafi lokið starfstengdum námskeiðum. Námsflokkar Reykjavíkur buðu upp á brú haustið 2002. Borgarholtsskóli og Menntaskólinn á Egilsstöðum haustið 2003. Menntaskólinn á Ísafirði hóf að kenna félagsliðanám með brúarfyrirkomulagi haustið 2004.

Félagsliðanámið er kennt í eftirtöldum skólum:

Danskir skólar:  www.sosu.dk og www.vidar.dk

Helstu störf félagsliða
Yfirmaður félagsliða er forstöðumaður eða deildarstjóri viðkomandi stofnunar, leikskólastjóri, skólastjóri eða skólameistari.
Starfsvettvangur félagsliða getur verið innan öldrunarstofnana, geðdeilda, liðveislu, í félagslegri heimaþjónustu, skólaathvarfi, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, félagsmiðstöðum og á sambýlum fatlaðra.

Félagliði:

  • Veitir notanda félagsskap og stuðning – stundum miðar aðstoðin að því að rjúfa félagslega einangrun með því að fylgja viðkomandi í félagsstarf og ýmsa afþreyingu og auka sjálfstæði og sjálfsbjörg hans í þeim aðstæðum.
  • Aðstoðar notanda við líkamlega umhirðu og fylgist með mataræði og klæðnaði. Hvetur notanda til sjálfshjálpar í þessum efnum. Sér um eða aðstoðar notanda við ræstingar, þvotta og önnur heimilisstörf eftir óskum og þörfum hans.
  • Aðstoðar notanda við rekstur erinda eða fylgir notanda í ýmsa þjónustu og meðhöndlun.
  • Setur sig inn í meðferðir, tjáningaform eða sértstakar aðstæður notanda, leiðbeinir í sumum tilvikum um hegðun og er fyrirmynd.
  • Leitast við að auka vellíðan og hamingju notanda með því að hlusta á óskir þeirra og langanir og hjálpa þeim að finna leiðir til að koma til móts við þær, sýna viðfangsefnum þeirra áhuga og spjalla um lífið og tilveruna.
  • Fylgist með heilsu og líðan notanda og lætur vita ef breytingar verða, þarf að þekkja leiðir og úrræði í því sambandi.
  • Tekur þátt í fundum um málefni einstakra notanda, deilda og vinnustaða. Gerir vinnuskýrslur og tekur þátt í skipulagsvinnu með öðru starfsfólki.
  • Aðstoðar notendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð. Styrkir jákvæða hegðun og vinnur gegn neikvæðri hegðun.
  • Félagsliði er oft eina og beina tenging notanda við kerfið og þarf því oft að geta ráðlagt notanda hvert hann geti leitað.
  • Félagsliði gætir trúnaðar / þagmælsku vegna starfsins, einnig eftir að hafa látið af störfum.