Efnisyfirlit
Fréttasafn
Netkosning
Því miður, enginn kosning í gangi núna.

Miðvikudagur 7. janúar 2009

Útskrift félagsliða

Þann 11. desember var Félag íslenskra félagsliða við útskrift félagsliða frá Mímir símenntun.  Alls útskrifuðust 11 manns. Félagið gaf penna og upplýsingabækling um félagið.

Þann 19. desember var Félag íslenskra félagsliða við útskrift félagsliða frá Borgarholtsskóla. Alls útskrifuðust 28 manns. Félagið gaf penna og upplýsingabækling um félagið.

Miðvikudagur 7. janúar 2009

Fræðslufundur félagsins

Þann 20. nóvember var haldinn fræðslufundur Félags íslenskra félagsliða. Þrír fyrirlesarar voru með erindi á fundinum, það voru: Jórunn Frímanns, frá velferðarsviði Reykjavíkur; Erla Björg Sigurðardóttir, forstöðukona á Njálsgötu 74  heimili fyrir heimilislausa og Halldóra Jónsdóttir sem er forstöðuþroskaþjálfi á vinnustofunni Ás.  Jórunn upplýsti okkur um ýmis vanda heimilslausra og úrræði Reykjavíkurborgar í þeim málum. Erla Björg sagði okkur frá heimilinu að Njálgötu 74 og þeirri vinnu sem þar fer fram. Halldóra sagði okkur frá kynningarferð nokkura leiðbeinenda á vinnustofunni Ás til Danmerkur s.l. sumar.

Miðvikudagur 7. janúar 2009

Framhaldsnám félagsliða

Félagið hefur verið í samstarfi við Starfsmennt og Fjölmennt um framboð á ýmsum námskeiðum fyrir félagsliða. Til stendur að bjóða upp á framhaldsnám hjá Borgarholtsskóla fyrir félagsliða, en málið er í biðstöðu í stjórnkerfinu eins og er. Við erum einnig með mál í gangi hjá menntamálaráðuneytinu varðandi smá lagfæringu á inntökuskilyrðum brúarnámsins.

Miðvikudagur 7. janúar 2009

Upplýsingabækliingur og ný heimasíða

Út er kominn upplýsingabæklingur frá Félagi íslenskra félagsliða um félagsliða.  Þeir sem hafa áhuga að fá bæklinga senda til sín sendi okkur erindi.
Einnig höfum við tekið í notkun heimasíðu félagsliða – felagslidar.is – og er smátt og smátt að koma mynd á hana.  Inn á henni er t.d. heilmikið af áhugaverðum tenglum, fréttir, lög og reglur félagsins og netföng stjórnarmanna.  Annað er enn í smíðum eftir því sem tími gefst til.  Allar ábendingar um hvað megi betur fara eru vel þegnar.  Hvað varðar gömlu heimasíðuna, þá munum við ennþá nýta okkur góða þjónustu og velþegna aðstoð og SFR vegna hennar.

Bls. 10 af 17« Fyrst...89101112...Síðast »