
Miðvikudagur 14. apríl 2010
Þar sem aðsóknin að námskeiðunum, sem eru í boði á Akureyri, náði ekki lágmarks fjölda þátttakenda þá hafa verið gerðar breytingar á dagskrá og námskeiðin verða fjarkennd.
Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað 29. apríl kl. 16-19
Vinnugildi og siðfræði starfs 6. maí kl. 16-19
Viðbrögð við áföllum á vinnustað 10. maí. kl. 16-19
Nánari upplýsingar gefur starfsfólk Starfsmenntar, www.smennt.is í síma 525 8395.

Laugardagur 3. apríl 2010
Við viljum vekja athygli félagsmanna okkar á að hætt er á því að námskeið falli niður, sérstaklega á landsbyggðinni, ef ekki fæst næg þátttaka. Við viljum því hvetja fólk að sækja, inn á vefsíðu Starfsmenntar www.smennt.is , um þessi námskeið fyrir 12. apríl.
Námskeiðin eru ókeypis fyrir félagsliða.

Laugardagur 20. mars 2010
Í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt verða haldin námskeið fyrir félagsliða á norðurlandi og eru þetta sömu námskeiðin og verða í boði í Reykjavík.
Fræðslufundirnir verða á eftirfarandi tímum:
Mánudaginn 19. apríl – Vinnugildi og siðfræði starfs – kl. 15-18
Mánudaginn 26. apríl – Viðbrögð við áföllum á vinnustað – kl. 15-18
Mánudaginn 3. maí – Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað – kl. 15-18
Námskeiðin verða haldin hjá Símenntunarstöð Eyjafjarðar, Þórsstíg 4, Akureyri.
Öll skráning á námskeið fer fram rafrænt á vefsíðu Starfsmenntar (www.smennt.is) en velkomið er að hafa samband við starfskonur Starfsmenntar í síma 525-8395 ef þörf er á aðstoð eða nánari upplýsingum um námskeiðin.
Námskeiðin eru einnig opin fyrir aðra sem vinna innan félags- og heilbrigðisgreina.

Fimmtudagur 18. mars 2010
Í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt verða haldin námskeið fyrir félagsliða á vestfjörðum og verða þau á Ísafirði. Þetta eru sömu námskeiðin og verða í boði í Reykjavík.
Fræðslufundirnir verða á eftirfarandi tímum:
Þriðjudaginn 20. apríl – Viðbrögð við áföllum á vinnustað – kl. 16-19
Fimmtudaginn 29. apríl – Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað – kl. 16-19
Þriðjudaginn 4. maí – Vinnugildi og siðfræði starfs – kl. 16-19
Einnig verður fjarkennt til Húsavíkur þessa sömu daga.
Öll skráning á námskeið fer fram rafrænt á vefsíðu Starfsmenntar (www.smennt.is) en velkomið er að hafa samband við starfskonur Starfsmenntar í síma 525-8395 ef þörf er á aðstoð eða nánari upplýsingum um námskeiðin.
Námskeiðin eru einnig opin fyrir aðra sem vinna innan félags- og heilbrigðisgreina.