
Mánudagur 15. febrúar 2010
Félag íslenskra félagsliða mun á næstunni, í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt halda þrjá fræðslufundi og eru þeir metnir samkv. kjarasamningum til eininga til launaflokkahækkunar.
Fræðslufundirnir verða á eftirfarandi tímum:
Miðvikudaginn 24. mars – Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað – kl. 18-21
Fimmtudaginn 8. apríl – Viðbrögð við áföllum á vinnustað – kl. 18-21
Fimmtudaginn 29. apríl – Vinnugildi og siðfræði starfs – kl.18-21
Viðbrögð við áföllum á vinnustað
Markmið: Að þátttakendur geti greint eðlileg viðbrögð við sorg, kreppu og áföllum og einnig hvernig hægt er að vinna sig út úr þeirri líðan. Fjallað verður um þá sorg og höfnun sem þeir sem misst hafa atvinnuna geta upplifað og hvernig takast má á við þá stöðu. Jafnframt er markmiðið að þátttakendur hafi innsýn í hvert hægt er að leita ef vanlíðan kreppu, sorgar eða áfalla veður meiri en einstaklingur eða fjölskylda getur afborið.
Vinnugildi og siðfræði starfs
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur velti fyrir sér þeim siðferðisspurningum og siðferðilegu álitamálum sem komið geta upp við úrlausn verkefna á starfsstað og hvaða leiðir eru farsælar í þeim efnum.
Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað
Á námskeiðinu verður stutt kynning á Vinnueftirlitinu og grunnvinnuverndarstarfi. Einnig verður fjallað um andlegan og félagslegan aðbúnað á vinnustað og unnin verða stutt verkefni. Á námskeiðinu verður skilgreint hvað er einelti og hvað felst í því að vera fórnarlamb, gerandi og áhorfandi. Skoðaðar verða mismunandi birtingarmyndir eineltis á vinnustað. Hvað er hægt að gera þegar upp kemur einelti á vinnustað? Er til áætlun hjá stofnunni um hvernig sé brugðist við einelti meðal starfsmanna. Einnig verður fjallað um hvað er kynferðisleg átreitni og hvaða aðstæður á vinnustað geta ýtt undir einelti og kynferðislega áreitni.
Staður og stund: Námskeiðin verða í sal á 1. hæð í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, kl. 18-22.
Öll skráning á námskeið fer fram rafrænt á vefsíðu Starfsmenntar www.smennt.is en velkomið er að hafa samband við starfskonur Starfsmenntar í síma 525-8395 ef þörf er á aðstoð eða nánari upplýsingum um námskeiðin.
Vegna útgáfu staðfestingaskírteina er nauðsynlegt er að skrá sig á fræðslufundina.
Fundirnir eru opnir öllum félagsliðum
Nánari upplýsingar gefur formaður Félag íslenskra félagsliða, í síma 849-0876.