Efnisyfirlit
Fréttasafn
Netkosning
Því miður, enginn kosning í gangi núna.

Mánudagur 25. janúar 2010

Fyrirlestur um “Andlega sjálfsvörn”

BSRB býður upp á opinn fyrirlestur um„Andlega sjálfsvörn“, en svo nefnist fyrirlestur sem Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar flytur í BSRB – húsinu nk. fimmtudag, 28. janúar kl. 16.  Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.

Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar.  Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks.  Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks.  Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu.

Þriðjudagur 5. janúar 2010

Skráning í félagið.

Eitthvað hefur verið um það að fólk haldi, að við útskrift úr félagsliðanámi, þá sé það sé sjálfkrafa skráð í Félag íslenskra félagsliða.  Það er ekki rétt.  Hver og einn verður að óska eftir aðildarskráningu.

Hægt er að prenta út af heimasíðunni eyðublað fyrir aðildarumsókn í félagið, en einnig er hægt að senda inn rafræna umsókn.

Fimmtudagur 24. desember 2009

Jólakveðja

Gleðileg Jól

Mánudagur 14. desember 2009

Frétt af löggildingarmálum.

Hvað er að frétta af umsókn okkar um löggildingu á starfsheitinu félagsliði.  Það er það helsta að, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu, þá er þetta mál okkar komið inn á borð hjá vinnumálasviði ráðuneytisins og er þar í vinnslu.  Álagið á ráðuneytinu er frekar mikið þessa dagana og verður það svo eitthvað áfram, en við verðum kölluð til fundar þegar afgreiðslu á máli okar er lokið eða á fyrri stigum málsins ef efni eru til þess.

Allt of snemmt er ennþá að segja til um hvernig málið fer, en það sakar engan að vona það besta

Bls. 4 af 17« Fyrst...2345610...Síðast »