
Fimmtudagur 12. nóvember 2009
Haldinn var stjórnarfundur í gær og mættu:
- Jóhannes A. Levy
- Alexsandra Einarsdóttir
- Stefán E. Hafsteinsson
Ákveðið var að halda fræðslufund seinni hluta janúar á næsta ári fyrir félagsliða. Umræðuefnið verður geðheilbrigðismál og þjónustan. Jóhannes og Stefán ætla undirbúa fræðslufundinn sem verður auglýstur síðar.
Formaður kynnti einnig mótmælabréfið sem félagið sendi til menntamálaráðuneytisins, vegna niðurskurðarins á síðdegis- og dreifnáminu. Einnig meðmæli sem félagið sendi til starfsmenntaráðs og mælti með því að Borgarholtsskóli fengi næstu starfsmenntaverðlaun. Beiðnin um fund með félagsmálaráðherra var sent 27. október s.l.
Áætlað er að halda næsta stjórnarfund 25. nóvember, kl 16:30 í húsnæði SFR.

Miðvikudagur 28. október 2009
Þann 28. okt. lagði Félag íslenskra félagsliða inn til mennta- og menningarmálaráðuneytisins mótmæli gegn niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar á síðdegis- og dreifnámi Borgarholtsskóla.
„Félag íslenskra félagsliða mótmælir harðlega þeim áformum stjórnvalda sem fram koma í fjárlagafrumvarpi að skerða sídegis- og dreifnám í Borgarholtsskóla um helming. Telur félagið að hér sé um vanhugsaða aðgerð að ræða sem jafnvel geti stefnt félagsliðanámi í hættu. Skorar félagið því á stjórnvöld að endurskoða þessi áform.
Í ljósi þeirra efnahagslegu og félagslegu hremminga sem nú ganga yfir íslenskt samfélag hefur krafan orðið háværari og þörfin fyrir fullorðinsfræðslu og starfsmenntun meiri. Með starfrækslu á fjölbreyttri framkvæmd félagsliðanámsins s.s. dag-, síðdegis-, og dreifnáms er Borgarholtsskóli í raun leitast við að koma til móts við þessi sjónarmið. Í þessu sambandi má nefna að námskostir þessir hafa ekki síst verðið nýttir af konum víðsvegar af landinu og á öllum aldri, sem af ýmsum ástæðum hafa orðið að hverfa frá námi á árum áður án þess að ljúka námi til starfsréttinda. Með eflingu eflingu þessa náms væri því verið að koma til móts við þarfir hóps á vinnumarkaði sem hefur átt verulega undir högg að sækja og er í verri stöðu en áður í þeim þrengingum sem nú ganga yfir samfélagið.
Efling á dreifnáminu og þeim menntunar- og námsúrræðum sem það býður upp á, væri því í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar varðandi aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi og alvarlegum félagslegum afleiðingum þess.
Tiltekið er í stjórnarsáttmálanum sérstaklega að tryggja þurfi öfluga fullorðinsfræðslu og gefa fólki tækifæri til að nýta hæfileika sína, þekkingu og metnað og að virkja vinnufúsar hendur með menntun. Í þessu sambandi skuli ekki síst horfa til stöðu kynjanna og mismunandi áhrifum á byggðir landsins. Sérstök áhersla er lögð á að stuðla að endurmenntun atvinnuleitenda. Kemur þetta og fram í stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðilavinnumarkaðarins sl. sumar og fyrri yfirlýsingar rikisstjórnar um sama mál. Er jafnvel að finna í yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar fyrirheit um aukin peningaframlög til fullorðinsfræðslu.
Félag íslenskra félagsliða skorar á stjórnvöld að efla og styrkja síðdegis- og dreifnámi í BHS. Gera verður skýran greinarmun á hefðbundinni þessa námskosta sem eru í boði í Borgarholtsskóla. Þeir námskostir sem Borgarholtsskóli býður upp á í dreifnámi og síðdegisnámi eru lítt eða ekki í boði annars staðar, og því ekki hægt að stunda annars staðar eða með öðrum hætti. Í engu er vikið frá framsettum námsmarkmiðum skv. námskrá og í kennslu eru bein samskipti nemenda og kennara nálægt því þau sömu og í dagskólakennslu.“

Þriðjudagur 13. október 2009
Markmið: Að starfandi félagsliðar dýpki þekkingu sína á ýmsum sviðum samskipta í leik og starfi.
Að loknu námskeiði eiga félagsliðar að geta greint samskipti á vinnustað og bent á leiðir til lausna.
Lýsing: Á námskeiðinu munu starfandi félagsliðar kynnast ólíkum samskiptaformum, fjallað verður um mun á jákvæðum og neikvæðum samskiptum. Fjallað verður um leiðir til að verjast ágengni og sýna sjálfstyrk sem og leiðir til úrlausna í erfiðum samskiptum. Farið verður yfir hvernig þátttakendur geta þekkt hvernig vinnustaðamenning hefur mótandi áhrif á samskipti.
Leiðbeinandi: Guðlaug María Bjarnadóttir leikari og framhaldsskólakennari
Tími: 3. og 5. nóvember kl: 17:00-21:00
Lengd: 10 kennslustundir
Verð: 17.000 Kr.
Skráning á framvegis.is

Fimmtudagur 1. október 2009
Markmið: Að starfandi félagsliðar dýpki þekkingu sína á ýmsum sviðum samskipta í leik og starfi.
Að loknu námskeiði eiga félagsliðar að geta greint samskipti á vinnustað og bent á leiðir til lausna.
Lýsing: Á námskeiðinu munu starfandi félagsliðar kynnast ólíkum samskiptaformum, fjallað verður um mun á jákvæðum og neikvæðum samskiptum. Fjallað verður um leiðir til að verjast ágengni og sýna sjálfstyrk sem og leiðir til úrlausna í erfiðum samskiptum. Farið verður yfir hvernig þátttakendur geta þekkt hvernig vinnustaðamenning hefur mótandi áhrif á samskipti.
Leiðbeinandi: Guðlaug María Bjarnadóttir leikari og framhaldsskólakennari
Tími: 3. og 5. nóvember kl: 17:00-21:00
Lengd: 10 kennslustundir
Verð: 17 000
Skráning á framvegis.is